Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 15:57 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 15:57 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 15:57 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 15:57 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 15:57 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 15:57 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sauðfjárslátrun er nú lokið á landinu og alls var 485.245 dilkum og 49.237 af fullorðnu sauðfé slátrað, eða samtals 534.482. Mest var slátrað hjá Sláturfélagi Suðurlands eða 107.532 og næst mest hjá Kaupfélagi Skagfirðinga eða 102.906. Sláturfélag KVH á Hvammstanga er í þriðja sæti með 96.746, Sláturhús Norðlenska í því fjórða með 89.111 og SAH Afurðir á Blönduósi í fimmta með 79.746.
Þessar tölur koma fram á vef Bændablaðsins. Þar kemur einnig fram að heildarfallþyngd alls sauðfjárins var rúm 9.465 tonn, en meðalþyngd dilka var 16,91 kg sem er met. Er þetta 124 tonnum minni heildarframleiðsla á kindakjöti en árið 2019. Inn í þessar tölur vantar kjöt af fé sem slátrað hefur verið en hefur ekki staðist mat af einhverjum orsökum og því flokkað sem úrkast. Þar er um að ræða 715 dilka og 1.538 fullorðið fé.
Í frétt Bændablaðsins segir að mikill samdráttur hafi orðið í framleiðslu á kindakjöti frá 1983 samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Þannig sé framleiðslan á yfirstandandi ári 2.750 tonnum minni en fyrir 35 árum, árið 1985, og 3.514 tonnum minni en hún var 1983 sem yfirlit Hagstofu Íslands nái til. Þannig hafi framleiðslan verið í niðursveiflu frá 2017 eftir 20 ára stíganda þar á undan, eða frá því botninum var síðast náð 1997.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |