Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 23:25 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 23:25 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 23:25 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 23:25 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 23:25 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 23:25 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Húnaþing vestra veitir árlega umhverfisviðurkenningar til þeirra sem eru til fyrirmyndar við fegrun lóða sinna. Umhverfisviðurkenningar árið 2020 voru veittar í síðasta mánuði en þær hlutu Sólgarður á Hvammstanga og Helguhvammur II. Nefnd vegna umhverfisviðurkenninga er skipuð af sveitarstjórn og heldur nefndin utan um valið ásamt Ínu Björk Ársælsdóttur umhverfisstjóra. Í nefndinni eru Erla B Kristinsdóttir, Birgir Þór Þorbjörnsson og Sólveig Hulda Benjamínsdóttir.
Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra og þar kemur fram að Sólgarður, að Garðavegi 14 á Hvammstanga hafi fengið umhverfisverðlaun fyrir vel hirta heimilis- og fyrirtækjalóð. Eigendur Sólgarðs hafi gert vel heppnaðar og fallegar endurbætur á lóðinni sem beri þeim gott vitni um atorku og umhyggju fyrir fallegu umhverfi.
Og að Helguhvammur II hafi fengið umhverfisverðlaun fyrir vel hirta landareign, snyrtileg mannvirki og fallegan heimilisgarð. Eigendurnir Sigurður Magnús Guðmundsson og María Inga Hjaltadóttir hafi hugað vel að öllu umhverfi og mannvirkjum á landareign sinni sem beri þeim gott vitni um atorku og umhyggju fyrir fallegu umhverfi.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |