Jólablað Feykis 2020
Jólablað Feykis 2020
Fréttir | 26. nóvember 2020 - kl. 14:00
Jólablað Feykis er komið út

Jólablað Feykis kom út í gær og ættu allir íbúar á Norðurlandi vestra á fá blaðið inn um bréfalúguna næstu daga en það er einnig aðgengilegt á netinu. JólaFeykir er 40 síður að þessu sinni, stútfullt af fjölbreyttu efni og auglýsingum. Samkvæmt óskráðum reglum er kökuþáttur í miðopnu og þar kennir fjölbreyttra kakna hjá dömunum í Kvenfélaginu Geirmundi. Feðginin Davíð Már og Rakel Sif eru í viðtali, spjallað er við Guðjón Ebba og Liyu Yirga hjá Teni á Blönduósi og Hvammstangabúinn Najeb Alhaj svarar Feyki.

Anna Kata segir okkur frá degi í lífi útfararstjóra í Englandi, Sölvi Sveins segir frá dögum í París og Gerður Kristný svarar bók-haldinu. Nokkrir gæludýraeigendur kynna okkur fyrir vinum sínum, leikskólabörn í Ársölum segja lesendum sína skoðun á jólunum og að sjálfsögðu er hin ómissandi jólamyndagáta á sínum stað.

Það eru engin jól án bóka. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir frá bók sinni um Jón Arason biskup á Hólum, Rakel Hinriksdóttir gaf nýverið út myndskreytta ljóðabók og ofurkokkurinn Þráinn Vigfússon er með matreiðslubók.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga