Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 01:35 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 01:35 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 01:35 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 01:35 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 01:35 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 01:35 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja gildandi reglugerðir um takmarkanir á samkomum og skólastarfi óbreyttar til 9. desember næstkomandi. Þetta er gert í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis sem ræður gegn því að slaka á sóttvörnum núna vegna þess hvernig faraldurinn hefur þróast síðustu daga.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Eins og fram kemur í meðfylgjandi minnisblaði sóttvarnalæknis, dagsett 29. nóvember, hafði hann áður gert ráð fyrir að hægt yrði að ráðast í varfærnar tilslakanir á gildandi sóttvarnalögum 2. desember og kynnt ákveðnar hugmyndir þar að lútandi fyrir ráðherra fyrir viku. Sóttvarnalæknir setti þó fyrirvara um að hann áskildi sér rétt til að endurskoða tillögur sínar um tilslakanir ef þróun faraldursins myndi breytast.
Fram kemur hjá sóttvarnalækni að undanfarið hafi orðið breytingar á faraldrinum. Upp hafi komið hópsýkingar og smitum fjölgað. Þá virðist fjöldi þeirra sem greinast utan sóttkvíar stefna í línulegan vöxt og hugsanlegan veldisvöxt segir sóttvarnalæknir. Tillaga hans er sú að engar breytingar verði gerðar á gildandi sóttvarnaráðsstöfunum, þ.e. takmörkunum á samkomum og skólastarfi næstu eina til tvær vikur. Við endurskoðun sóttvarnaráðstafana sem hefjast þegar í stað, verður meðal annars horft til þess hvort tilefni sé til að gera tilslakanir á landsbyggðinni umfram höfuðborgarsvæðið í samræmi við hugleiðingar sóttvarnalæknis í meðfylgjandi minnisblaði, dags. 30. nóvember.
Sem fyrr segir felur ákvörðun ráðherra í sér óbreyttar sóttvarnaráðstafanir til og með 9. desember.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |