Fréttir | 15. desember 2020 - kl. 12:25
Smáframleiðendur á ferðinni

Smáframleiðendur á Norðurlandi vestra, í samstarfi við Vörusmiðjuna BioPol, eru á ferðinni í Húnavatnssýslum þessa vikuna. Í dag er sölubíllinn á Skagaströnd og Blönduósi og á fimmtudaginn verður hann á Borðeyri og Hvammstanga.

Hægt er að kynna sér áætlun bílsins og vöruúrval nánar á Facebooksíðu Vörusmiðjunnar Biopol og einnig geta þeir sem þess óska pantað vörur í netverslun Vörusmiðjunnar og fengið afhent á viðkomustöðum bílsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga