Fréttir | 16. desember 2020 - kl. 09:47
Hugsum hærra í janúar

Ráðgjafafyrirtækið Senza, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Vestfjarðarstofa standa fyrir hraðlinum Hugsum hærra fyrir fyrirtæki á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Í hraðlinum fá starfandi fyrirtæki sem vilja hugsa hærra aðstoð við að vinna fjárfestakynningar, móta stefnu og ramma inn viðskiptaáætlun. Sérstök áhersla er að styrkja fyrirtæki í gerð umsókna í nýsköpunarsjóði.

Hraðallinn hefst 7. janúar næstkomandi á kynningarfundi og netnámskeiði. Vinnustofur standa yfir í þrjá daga, í vikunni 11-15. janúar (sjá dagskrá hér). Einar Sigvaldason, MBA, stjórnendaþjálfi og ráðgjafi hjá Senza Partners leiðir hraðallinn. Einar hefur starfað í nýsköpun í 15 ár, sem framkvæmdastjóri og meðstofnandi þriggja sprotafyrirtækja á hugbúnaðarsviði og hefur fimm sinnum fengið Rannís styrki fyrir eigin fyrirtæki og tvisvar sprotafjármögnun.

Hraðallinn felur í sér:

  • Einkaráðgjöf (3-4 klst per teymi)
  • Ítarlegt netnámskeið (3 klst) í umsóknarskrifum í Rannís sjóði. Nánari upplýsingar hér.
  • Fyrirlestrar: Fjárfestakynningar, stefnumótun og viðskiptaáætlanir.
  • Eftirfylgni í þrjá mánuði eftir að hraðlinum lýkur.

Nánari upplýsingar um hraðalinn má nálgast á vefsíðu Senza.

Leitað er eftir fyrirtækjum sem huga að efla starfsemi sína. Miðað er við að fyrirtæki séu nú þegar starfandi með vöru eða þjónustu á markaði. Vestfjarðarstofa og SSNV niðurgreiða hraðalinn þannig að þátttökugjald er 45.000 kr. á hvert fyrirtæki sem tekur þátt í hraðlinum. Athugið að stéttarfélög niðurgreiða í mörgum tilvikum allt að 90% af þátttökugjaldi.

Umsóknarfrestur er til 5. janúar 2020.

Umsóknareyðublað má finna hér.

Nánari upplýsingar veitir Kolfinna hjá SSNV, kolfinna@ssnv.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga