Fréttir | 16. desember 2020 - kl. 12:20
Jólapóstur á Skagaströnd

Á Skagaströnd hafa náðst samningar við þá jólasveinabræður sem eru væntanlegir til byggða á Þorláksmessu til að bera út pakka og bréf. Þeir taka ekki annað í mál en að gæta sóttvarna og verða að sjálfsögðu með grímur og hanska. Þeir sem vilja nýta sér þjónustu jólasveinanna geta hitt umboðsmenn þeirra við kennarainngang Höfðaskóla mánudaginn 21. desember klukkan 18-20.

Bréf kostar 100 krónur. Pakki 500 krónur. Ekki er posi á svæðinu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga