Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Fréttir | 16. desember 2020 - kl. 15:37
Húnaþing vestra fær 5 milljónir frá Orkusjóði

Orkusjóður hefur úthlutað Húnaþingi vestra 5 milljón króna styrk til uppsetningar á hleðslustöð á Hvammstanga. Styrkurinn er veittur í flokki innviðastyrkja fyrir vistvæn ökutæki við opinbera staði. Alls veitti Orkusjóður 192 milljónir í styrki nýverið til 55 verkefna í orkuskiptum en sótt var um 482 milljónir til 76 verkefna. Flest verkefnin styðja við áframhaldandi rafvæðingu bílaflotans.

Áherslan er nú á bílaleigur, samgöngufyrirtæki og sveitarfélög. Einnig er stutt við uppbyggingu innviða til nýtingar á metangasi og raforku til fóðurpramma í fiskeldi. Þessi verkefni eiga það öll sammerkt að minnka losun gróðurhúsalofttegunda og stuðla að aukinni notkun á innlendri og vistvænni orku.

Nánari upplýsingar um einstaka styrki Orkusjóðs árið 2020 má sjá hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga