Fréttir | 17. desember 2020 - kl. 11:05
Á dögunum kom út bókin „Íslenskir vettlingar“ sem inniheldur 25 nýjar útfærslur á gömlum mynstrum. Höfundur bókarinnar er Guðrún Hannele Henttinen og útgefandi er Vaka-Helgafell, sem er hluti af Forlaginu ehf.
Allar uppskriftirnar í bókinni byggja á vettlingum sem varðveittir eru í Heimilisiðnaðarsafninu. Er þessi útgáfa enn eitt dæmið um hvernig munir í Heimilisiðnaðarsafninu verða að yrkisefni höfunda, hönnuða og listamanna við nýja listsköpun.
Í bókinni eru myndir af upprunalegu vettlingunum sem sjá má í safninu en með hverri mynd er uppskrift af nýju vettlingunum. Í mörgum tilfellum eru vettlingarnir skrautlegir en hæfa þó mjög vel gömlu vettlingunum bæði með tilliti til prjónatækni og mynsturgerðar.
Bókin sem er bæði vegleg og falleg, útgefin á íslensku og ensku er nú þegar fáanleg í Heimilisiðnaðarsafninu. Þeir sem óska eftir að kaupa bókina hafi vinsamlegast samband við Elínu í síma 8626147 eða í tölvupósti textile@textile.is
Því miður er ljóst að ekki eru tök á að halda hinn árlega viðburð Upplestur á aðventu í safninu fyrir þessi jól sem hefur verið ein af jólahefðunum.
Heimilisiðnaðarsafnið sendir héraðsbúum bestu hátíðaóskir með von um bjarta tíð.