Fréttir | 17. desember 2020 - kl. 15:02
Kosning um Mann ársins 2020 hjá Feyki

Feykir stendur fyrir kjöri á manni ársins á Norðurlandi vestra líkt og gert hefur verið undanfarin ár. Íbúum á svæðinu og öðrum lesendum Feykis gefst kostur á að velja úr hópi þeirra sem tilnefndir voru af lesendum. Í þetta skiptið bárust tilnefningar um sjö einstaklinga. Hægt verður að greiða atkvæði á vefnum Feyki.is eða senda atkvæði í pósti á Feykir, Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur. Kosningin er hafin og lýkur á miðnætti á nýársdag, 1. janúar.

Tilnefningar má sjá á vef Feykis en þær eru, í stafrófsröð: Andri Páll Guðmundsson Hvammstanga, Bryndís Rut Haraldsdóttir Varmahlíð, Karólína Elísabetardóttir Hvammshlíð Austur-Húnavatnssýslu, Lilja Gunnlaugsdóttir Áshildarholti, Skagafirði, Sveinn Margeirsson frá Mælifellsá Skagafirði, Valdimar Guðmannsson Blönduósi og Þórólfur Gíslason Sauðárkróki.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga