Lilja Rannveig
Lilja Rannveig
Fréttir | 18. desember 2020 - kl. 09:27
Formaður SUF stefnir á þing

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, sem er formaður Sambands ungra Framsóknarmanna, gefur kost á sér í 3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2021. Í tilkynningu segist hún hafa innilegan áhuga á að taka þátt í stjórnmálum og vilji bjóða fram krafta sína til þess að bæta samfélagið næstu árin.

„Þau mál sem brenna helst á mér eru jafnt aðgengi að námi, tækifæri fólks til atvinnu alls staðar á landinu og umhverfismál. Ég hef verið ötull talsmaður fjarnáms og starfa án staðsetningar. Ég vil að börn og ungmenni hafi öruggt aðgengi að íþróttum, tómstundum og félagsstörfum og að börn eigi möguleika á leikskólavist frá 1 árs aldri. Við eigum einnig að halda áfram að styðja við námsmenn og gefa þeim tækifæri á að sækja sér nám á sínum forsendum.

Þegar ég lít á stóru myndina þá vil ég að landið sé sem sjálfbærast. Við eigum að gera eins mikið og við getum til þess að vera með næga matvælaframleiðslu innanlands sem er einnig í hæsta gæðaflokki. Við ættum að stefna á að farartæki séu búin þeim búnaði að hægt sé að nýta innlenda orkugjafa.“

Lilja Rannveig er fædd 1996, stundar námi við Háskóla Íslands og er búsett í Bakkakoti í Borgarbyggð ásamt fjölskyldu sinni. Unnusti hennar er Ólafur Daði Birgisson og saman eiga þau tvö börn. Lilja hefur verið formaður Sambands ungra Framsóknarmanna síðan 2018 og er varaþingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga