Frá Húnavöllum
Frá Húnavöllum
Fréttir | 21. desember 2020 - kl. 16:12
Afmörkun Hálendisþjóðgarðs hvíli ekki á röksemdum um náttúrufar

Húnavatnshreppur leggst gegn samþykkt frumvarps um Hálendisþjóðgarð. Í bókun sveitarstjórnar á fundi sínum í síðustu viku segir að tillögur um afmörkun þjóðgarðs hvíli ekki á sérstökum röksemdum um náttúrufar heldur birtist sem krafa um yfirráð á svæðum þar sem þegar sé gætt að hagsmunum náttúruverndar með Landskipulagi samþykktu af Alþingi, aðalskipulagi, eigandastefnu forsætisráðuneytisins um þjóðlendur og fleira.

Þá segir í bókunni að í undirbúningi málsins hafi ekki verið hugað að kostum núverandi umsjónar með þjóðlendum, sem liggi í raun hjá Alþingi, forsætisráðuneyti og sveitarfélögum. Um afstöðu sveitarfélagsins til frumvarpsins er síðan vísað til fyrri athugasemda, síðast með sameiginlegri umsögn fjögurra sveitarfélaga á Norðurlandi vestra við frumvarpsdrögin í janúar á þessu ári.

Sveitarstjórn hefur falið sveitarstjóra að fylgja eftir afstöðu sveitarstjórnar til málsins við Alþingi og samþykkti drög að umsögn um málið, þar sem fram kemur umfjöllun um nokkur meginatriði auki fyrri athugsemda við málið.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga