Þorleifur bólusettur, fyrstur íbúa á hjúkrunarheimili. Mynd: stjornarradid.is
Þorleifur bólusettur, fyrstur íbúa á hjúkrunarheimili. Mynd: stjornarradid.is
Heilbrigðisstarfsfólk bólusett í morgun. Ljósm: stjornarradid.is
Heilbrigðisstarfsfólk bólusett í morgun. Ljósm: stjornarradid.is
Fréttir | 29. desember 2020 - kl. 12:24
Bólusetning hafin við COVID-19

Fjórir starfsmenn heilbrigðisþjónustu voru bólusettir við COVID-19 klukkan níu í morgun og voru þar með fyrstir allra til að hljóta bólusetningu hér á landi. Klukkan tíu hófst bólusetning á hjúkrunarheimilum. Þorleifur Hauksson var fyrstur íbúa á hjúkrunarheimili til að fá bólusetningu en hann býr á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð í Reykjavík. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins fylgdust með bólusetningu Þorleifs, ásamt starfsfólki Seljahlíðar og fjölmiðlafólki og var tímamótunum vel fagnað af Þorleifi og öðrum viðstöddum.

Tíuþúsund skammtar af bóluefni Pfizer komu til landsins í gær. Bólusetja þarf hvern og einn tvisvar sinnum og dugir efnið því fyrir 5.000 manns. Flutningar bóluefnisins út um land hófust í morgun, bólusetning framlínustarfsfólks á Landspítala er hafin og eftir hádegi í dag verður framlínustarfsfólk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins bólusett.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga