Af heimasíðu Björgunarf. Blöndu á Facebook
Af heimasíðu Björgunarf. Blöndu á Facebook
Fréttir | 29. desember 2020 - kl. 15:23
Flugeldamarkaður Björgunarfélagsins Blöndu er opinn

Björgunarfélagið Blanda hefur opnað flugeldamarkað sinn að Hafnarbraut 6 á Blönduósi. Opið er í dag og morgun 30. desember frá kl. 14:00 – 22:00 og þann 31. desember frá kl. 10:00 – 14:00.

Eins og víða um landið verður engin brenna þetta árið vegna samkomutakmarkana. Stefnt er að því að halda flugeldasýningu á gamlárskvöld kl. 20:30. Sýningin verður á sama gamla góða staðnum milli blokkarinnar og Miðholts, því verður hægt að fylgjast með og njóta sýningarinnar úr fjarlægð. Íbúar á Blönduósi eru hvattir til að njóta flugeldasýningarinnar heiman frá sér.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga