Sveinfríður bólusett. Ljósm: hsn.is
Sveinfríður bólusett. Ljósm: hsn.is
Fréttir | 29. desember 2020 - kl. 16:05
Sveinfríður fyrst á Norðurlandi til að fá bólusetningu við kórónuveirunni

Sveinfríður Sigurpálsdóttir var fyrsti íbúinn á Norðurlandi til að fá bólusetningu við kórónuveirunni. Sveinfríður hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi frá árinu 1973. Sveinfríður tók bólusetningunni vel og kenndi sér einskis meins, að því er segir í frétt á vef Heilbrigðisstofnunar Norðurlands.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga