Fréttir | 30. desember 2020 - kl. 11:06
Ábending frá lögreglu og brunavörnum

Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra, Brunavarnir Skagafjarðar, Brunavarnir Austur-Húnvetninga og Brunavarnir Húnaþings vestra vekja athygli á því að ekki er heimilt að losa úrgang utan viðurkenndra móttökustöðva sorps. Sama á við um brennslu úrgangs. Brot gegn lögunum varða sektum eða fangelsi allt að 4 árum, sé um stórfelld eða ítrekuð brot að ræða.

Í tilkynningu sem birt er á Facebook segir:

Nokkuð hefur borið á tilkynningum til viðbragðsaðila vegna gruns um bruna, þar sem í ljós hefur komið að aðeins hefur verið um að ræða brennslu sorps og annars úrgangs. Sem dæmi má nefna að lögregla og Brunavarnir Skagafjarðar voru kölluð út síðdegis þann 24. desember sl. vegna slíkrar tilkynningar. Vegna útkallsins voru kallaðir til u.þ.b. 20 starfsmenn viðbragðsaðila með tilheyrandi kostnaði og fyrirhöfn, auk þess sem útkallið hafði áhrif á jólahald viðkomandi starfsmanna. Þegar tilkynningar um bruna berast lögreglu og slökkviliði er ávallt brugðist við með því að senda allan tiltækan mannskap og tæki á vettvang og er því, í tilfellum eins og því sem átti sér stað 24. desember sl., staðan sú að mikið af mannskap er kallað út til að sinna verkefni sem reynist síðan ekki vera fyrir hendi. Ábyrðin á tilhæfulausum tilkynningum er ekki á ábyrgð tilkynnenda í slíkum tilfellum þar sem það er samfélagsleg skylda okkar allra að tilkynna um neyð þar sem við teljum hana vera til staðar.

Til að komast megi hjá þeim kostnaði og fyrirhöfn sem fylgir útköllum á borð við það sem greint er frá hér að framan, og mögulega beitingu viðurlaga, vilja lögregla og slökkvilið beina þeim tilmælum til að fólks að brenna ekki sorp heldur skila því á móttökustöðvar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga