Engar verða brennurnar um þessi áramót
Engar verða brennurnar um þessi áramót
Fréttir | 31. desember 2020 - kl. 07:22
Óhefðbundin áramót framundan

Áramótabrennur og flugeldar eru í hugum margra órjúfanlegur hluti áramótanna. Á þessu sérkennilega ári sem nú er að líða eru brennur bannaðar enda óheimilt að vera með viðburði sem stuðla að hópamyndun. Þar með er rofin aldagömul hefð en brennur hafa tíðkast hér á landi í um 230 ár. Flugeldar eru ekki bannaðir en flugeldasala er mikilvægasta einstaka fjáröflun flestra björgunarsveita landsins. Í sumum tilfellum stendur hún undir nær öllum rekstri einstakra sveita.

Fyrir þá sem vilja ekki kaupa flugelda en vilja styrkja björgunarsveitir er hægt að kaupa svokölluð Rótarskot. Hvert Rótarskot gefur af sér tré sem plantað er í nafni kaupandans, með stuðningi Skógræktarfélags Íslands. Allur ágóðinn af sölu Rótarskotanna rennur til björgunarsveitanna. Rótarskotin fást á flugeldasölustöðum um allt land.

Sýnum aðgát við notkun flugelda um áramótin
Húnahornið brýnir fólk að sýna fyllstu aðgát við notkun flugelda og blysa. Brýnt er að gæta þess að börn séu ekki að nota skotelda sem þau hafa ekki þroska til að fara með og að þau séu í öruggu skjóli. Allir sem kveikja á skoteldum eiga að hafa öryggisgleraugu og vera í klæðnaði sem ekki flækist fyrir eða fuðrar upp við minnsta neista. Þá er mikilvægt að flugeldar eða blys séu á traustum undirstöðum þegar verið er að kveikja á þeim.

Gleðilegt nýtt ár.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga