Jólahús ársins 2020 á Blönduósi: Urðarbraut 15.
Jólahús ársins 2020 á Blönduósi: Urðarbraut 15.
Fréttir | 04. janúar 2021 - kl. 06:48
Urðarbraut 15 er Jólahús ársins 2020 á Blönduósi
Valið af lesendum Húnahornsins

Lesendur Húnahornsins hafa valið Urðarbraut 15 sem Jólahús ársins 2020 á Blönduósi. Húsið er ríkulega skreytt jólaljósum sem fangar hinn sanna jólaanda og sannarlega vel að viðurkenningunni komið. Eigendur hússins eru Heiðar Þórsson og Guðrún Björk Elísdóttir. Þetta er í fyrsta sinn sem hús við Urðarbraut fær þessa viðurkenningu í þessum skemmtilega jólaleik.

Þau hús sem tilnefnd voru oftast, fyrir utan Urðarbraut 15, voru Sunnubraut 1, Mýrarbraut 35 og Brekkubyggð 17. Þegar allar tilnefningar voru taldar hlaut Urðarbraut 15 þær flestar og eru hér nokkur dæmi um umsagnir sem húsið fékk:

„Skemmtilegar skreytingar og þarna svífur jólaandinn yfir vötnum“
„Fallega skreytt, ríkulegt af fallegum jólaljósum“
„Falleg jólaljós sem gaman er að horfa á og skoða“
„Mjög jólalegt og fallegt hús“
„Virkilega fallegar og skemmtilegar skreytingar“

Þetta var í 19. sinn sem lesendur Húnahornsins velja Jólahús ársins á Blönduósi. Þau hús sem hlotið hafa viðurkenningu eru:

2020: Urðarbraut 15
2019: Brekkubyggð 21
2018: Hólabraut 11
2017: Skúlabraut 22
2016: Aðalgata 10 (Tilraun)
2015: Skúlabraut 1
2014: Hlíðarbraut 1
2013: Heiðarbraut 1
2012: Mýrarbraut 33
2011: Melabraut 19
2010: Mýrarbraut 35
2009: Hlíðarbraut 4
2008: Hlíðarbraut 8
2007: Ekkert val
2006: Sunnubraut 3
2005: Hlíðarbraut 8
2004: Hlíðarbraut 13
2003: Garðabyggð 1
2002: Hlíðarbraut 13
2001: Brekkubyggð 17

Húnahornið óskar íbúum Urðarbrautar 15 innilega til hamingju með viðurkenninguna.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga