Jóhann Magnússon. Ljósm: usvh.is
Jóhann Magnússon. Ljósm: usvh.is
Fréttir | 04. janúar 2021 - kl. 13:35
Jóhann Magnússon er Íþróttamaður USVH 2020

Jóhann Magnússon, knapi í Hestamannafélaginu Þyt, hefur verið kjörinn Íþróttamaður Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga árið 2020. Jóhann náði góðum árangri í keppnum árið 2020. Hann er í liði í Meistaradeildinni og þess má geta að í sumar keppti hann í mótaröðinni Skeiðleikar, þar sem fljótustu skeiðhestar landsins etja kappi. Jóhann var tilnefndur sem skeiðknapi ársins af Landssambandi hestamannafélaga.

Sagt er frá þessu á vef USVH. Þar kemur einnig fram að Helga Una Björnsdóttir, hestaíþróttakona, hafi lent í öðru sæti í kjörinu og Dagbjört Dögg Karlsdóttir, körfuknattleikskona, í því þriðja.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga