Tilkynningar | 04. janúar 2021 - kl. 14:14
Af óviðráðanlegum orsökum hefur fyrirhugaðri ferð fulltrúa sýslumanns til Hvammstanga þriðjudaginn 5. janúar verið frestað til þriðjudagsins 12. janúar nk.
Þjónustuþegum er bent á að beina erindum sínum, sem eigi þola bið, rafrænt á netfang embættisins, nordurlandvestra@syslumenn.is eða hafa samband við aðalskrifstofu embættisins í síma 458-2500. Reynt verður eftir fremsta megni að leysa úr þeim erindum sem berast með þessum hætti.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra,
4. janúar 2021
Birna Ágústsdóttir, sýslumaður