Fréttir | 04. janúar 2021 - kl. 16:46
Eldur kom upp í Félagsheimilinu á Hvammstanga

Umtalsverðar skemmdir urðu á húsnæði því er hýsir dreifnám Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Hvammstanga er eldur kom upp í félagsheimilinu rétt fyrir miðnætti þann 2. janúar síðastliðinn. Tilkynning um eldinn barst slökkviliðinu klukkan 23:55. Tilkynnt var um eld utandyra í ruslatunnu undir svölum félagsheimilisins en þegar komið var á staðinn hafði eldurinn læst sig í húsnæði dreifnámsins.

Greiðlega gekk að slökkva eldinn að sögn Jóhannesar Kára Bragasonar slökkviliðsstjóra en reykur barst víða um húsið og þurfti að reykræsta að slökkvistarfi loknu.

Upptök eldsins eru ekki að fullu kunn en líklegt þykir að um fikt með flugelda hafi verið að ræða.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga