Fréttir | 05. janúar 2021 - kl. 13:57
Húsaleigubætur - námsmenn

Blönduóssbær vekur athygli á því á vef sínum að námsmenn þurfa að sækja um húsaleigubætur fyrir hverja önn. Umsóknir vegna húsaleigubóta skulu hafa borist eigi síðar en 15 dögum fyrir lok þess mánaðar sem sótt er um húsaleigubætur fyrir.

Umsókn þarf að fylgja:

  • Útfyllt umsóknareyðublað - eyðublað er að finna á heimasíðu Blönduósbæjar, eyðublað má nálgast hér
  • Húsaleigusamningur til a.m.k 6 mánaða
  • Staðfesting skóla um nám ungmenna

Húsaleigubætur greiðast mánaðarlega fyrir síðastliðin mánuð.

Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast inni á vef Blönduósbæjar, www.blonduos.is eða á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar  www.hms.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga