Hjálmar Sigurðsson. Ljósm. blonduos.is
Hjálmar Sigurðsson. Ljósm. blonduos.is
Fréttir | 06. janúar 2021 - kl. 11:17
Nýr launafulltrúi hjá Blönduósbæ

Hjálmar Sigurðsson hefur verið ráðinn í starf launafulltrúa hjá Blönduósbæ og mun hann sjá um launavinnslu sveitarfélagsins ásamt öðrum almennum skrifstofustörfum. Hann tekur við starfinu af Kristínu Ingibjörgu Lárusdóttur sem var ráðin menningar-, íþrótta og tómstundafulltrúi Blönduósbæjar í lok síðasta árs.

Hjálmar lauk námi í hagfræði við Háskóla Íslands síðastliðið haust. Hann hefur starfað með námi sínu síðastliðin tvö sumur hjá Gamma Capital Management í Reykjavík og áður í tvö sumur hjá embætti Sýslumannsins á Norðurlandi vestra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga