Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 23:21 0 0°C
Laxárdalsh. 23:21 0 0°C
Vatnsskarð 23:21 0 0°C
Þverárfjall 23:21 0 0°C
Kjalarnes 23:21 0 0°C
Hafnarfjall 23:21 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Frá undirritun samningsins. Sigurjón Rafnsson, aðstoðarkaupfélagsstjóri KS og Jóhannes Torfason stjórnarformaður Vilko ehf.
Frá undirritun samningsins. Sigurjón Rafnsson, aðstoðarkaupfélagsstjóri KS og Jóhannes Torfason stjórnarformaður Vilko ehf.
Fréttir | 06. janúar 2021 - kl. 19:21
Vilko og Náttúrusmiðjan kaupa Prótís af Kaupfélagi Skagfirðinga

Vilko ehf. á Blönduósi og Náttúrusmiðjan ehf. hafa keypt allt hlutafé í íslenska líftæknifyrirtækinu Prótís sem hefur verið í eigu Kaupfélags Skagfirðinga frá upphafi.

Í tengslum við viðskiptin verður Kaupfélag Skagfirðinga fimmtungshluthafi í Vilko ehf.  Eitt af markmiðum þessara viðskipta er að auka samstarf milli aðila.

Protís ehf. sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu á lífvirku fiskprótíni úr villtum íslenskum þorski, eða svokölluðu IceProtein® og afurðum sem innihalda IceProtein®. Hlutverk fyrirtækisins er að skapa verðmæti með því að þróa og markaðssetja heilsuvörur úr íslensku hráefni, sem aflað og unnið er á sjálfbæran hátt, fyrir viðskiptavini sem leita eftir hágæða náttúrulegum fæðubótarefnum.

Framtíðarsýn nýrra eigenda felur í sér að breikka vörulínu Protís og viðhalda núverandi gæðastimpli sem og að auka vitund vörumerkisins.

Vilko var stofnað 1969 og hefur staðið að framleiðslu á eigin vörumerki sem aðalega hafa verið bökunarvörur og súpur. Vilko á einnig vörumerkið Prima sem er þekkt fyrir stórt úrval krydda. Vilko hóf að framleiða náttúruleg bætiefni í hylkjum fyrir Náttúrusmiðjuna ehf. árið 2012, sem þróar og selur náttúrulegu bætiefnalínuna ICEHERBS.   

Starfsemi Prótís fellur einkar vel undir framleiðslustarfsemi Vilko og þróunar- og sölustarfs Náttúrusmiðjunnar.

Margra ára rannsóknar- og þróunarvinna er að baki vöruúrvals Prótís. Mest seldu tegundirnar eru Protís liðir og Protis kollagen en í þeim er  auk þorskpróteina meðal annars að finna kollagen úr skrápi sæbjúgna og íslensku fiskroði auk margvíslegra vítamína, steinefna og annarra innihaldsefna.

Vilko hefur hylkjað og pakkað vörum Protís síðustu árin rétt eins og fæðubótarefnum ICEHERBS og fleiri framleiðenda. Mikil aukning hefur verið í þeim hluta starfseminnar. Íslensk náttúra og hugvit koma því víða við sögu í þeirri stöðugt vaxandi framleiðslu sem fest hefur rætur á Blönduósi.

Kári Kárason, framkvæmdastjóri Vilko: „Það er mikið fagnaðarefni að fá Protís inn í eignasafn fyrirtækisins og ekki síður að fá Kaupfélag Skagfirðinga inn í eignarhaldið. Með bæði nýju vörumerki sem og að fá Kaupfélag Skagfirðinga  að rekstri Vilko fæst auðvitað mikil reynsla og þekking. Þetta er mikill kraftur fyrir starfsemina og aukinn byr í segl fyrir framtíðarsýn og þróun Prótís og um leið lyftistöng fyrir atvinnulífið hér á Norðurlandi vestra“.

Höf. ass
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið