Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 12:41 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 12:41 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 12:41 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 12:41 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 12:41 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 12:41 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Slökkvilið Skagastrandar og Björgunarsveitin Strönd festu kaup á nýjum bifreiðum síðastliðið haust sem hafa verið teknar í notkun. Nýi slökkvibíllinn var keyptur frá Feuerwehrtechnik Berlin og er af gerðinni MAN TGM, 2020 árgerð. Bíllinn er hinn glæsilegasti með 3.000 lítra vatnstanki og 300 lítra froðutanki ásamt því að vera búin öllum helsta búnaði sem nauðsynlegur er til slökkvistarfa.
Bíllinn leysir af hólmi gamla slökkvibíl liðsins sem er Mercedez Benz árgerð 1977 svo um mikilvæga endurnýjun er að ræða. Slökkvilið Skagastrandar er rekið af Sveitarfélaginu Skagaströnd og Skagabyggð og tók Skagabyggð þátt í kaupunum.
Björgunarsveitin Strönd fjárfesti í bifreið með styrk frá Sveitarfélaginu Skagaströnd. Bifreiðin er af gerðinni Land Cruiser 2007 árgerð sem hefur verið breytt fyrir 44" dekk. Bíllinn er búinn öllum nauðsynlegum búnaði sem þarf til leitar og björgunar.
Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar. Þar óskar sveitarfélagið slökkviliði og björgunarsveit innilega til hamingju með þennan áfanga „sem mun auka öryggi íbúa og nýtast vel í framtíðar verkefnum á svæðinu.“
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |