Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 28. mars 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Mars 2024
SMÞMFL
252627282912
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 17:33 0 0°C
Laxárdalsh. 17:33 0 0°C
Vatnsskarð 17:33 0 0°C
Þverárfjall 17:33 0 0°C
Kjalarnes 17:33 0 0°C
Hafnarfjall 17:33 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
22. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
17. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
15. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
11. mars 2024
Núpsdalstunga. Mynd: Fasteignavefur mbl.is
Núpsdalstunga. Mynd: Fasteignavefur mbl.is
Fréttir | 16. janúar 2021 - kl. 15:51
Skorað á ráðherra að hafna kaupum á Núpsdalstungu í Miðfirði

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur óskað eftir umsögn sveitarfélagsins Húnaþings vestra vegna kaupa einkahlutafélagsins Flaums á jörðinni Núpsdalstungu í Miðfirði. Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins eiga Flaumur og tengdir aðilar 5.548 hektara lands fyrir kaupin. Í jarðalögum er kveðið á um ákveðin skilyrði fyrir kaupum á jörð ef kaupandi og tengdir aðilar fara yfir ákveðið hámark í fjölda jarða og hektara. Stjórn Félags sauðfjárbænda í Vestur-Húnavatnssýslu hefur skorað á ráðherra að hafna kaupunum.

Mikilvægt að nýting á bújörðum sé tryggð
Á fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra á fimmtudaginn var fært til bókar að sveitarstjórn vilji árétta að það sé vilji hennar að jarðir séu seldar til búsetu. „Mikilvægt er að tryggja nýtingu á bújörðum og búsetu enda er slík nýting um allt sveitarfélagið lífæð samfélagsins. Sveitarstjórn vill leggja áherslu á að eign jarðar fylgja ekki aðeins réttindi til nýtingar hlunninda viðkomandi jarðar heldur einnig skyldur við jörðina og samfélagið allt. Það er eindreginn vilji sveitarstjórnar að allar jarðir í sveitarfélaginu verði nýttar með það að markmiði að styðja við fjölbreytta atvinnusköpun, eflingu byggðar og styrkingu búsetu. Þar af leiðandi er mikilvægt að ábúð sé á sem flestum jörðum. Sveitarstjórn telur ekki æskilegt að margar jarðir safnist á fárra hendur,“ segir bókuninni.

Sveitarstjórnin bendir einnig á að engin gögn hafi fylgt beiðni um umsögn frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu varðandi málið í upphafi og málið því verið mjög óljóst þegar það barst sveitarfélaginu. Þurfti sveitarstjórnin að kalla sérstaklega eftir gögnum. „Eðlilegast hefði verið að viðkomandi fylgigögn hefðu fylgt með beiðni um umsögn strax í upphafi og er mælst til að það verði gert í framtíðinni,“ segir í bókun sveitarstjórnar.

Þá bendir sveitarstjórnin jafnframt á að hún telji eðlilegt að ráðuneytið móti sér hið fyrsta verklagsreglur varðandi framkvæmd laga nr. 81/2004 með síðari breytingum frekar en að leggja þá ábyrgð alfarið á hendur sveitarfélaga, enda virðist það afar misjafnt eftir málaflokkum hverju sveitarfélögum er treyst fyrir. Þá kunni það að vera eðlilegra að ráðuneytið vinni stutta umsögn um málið með hliðsjón af þeim atriðum sem tíunduð eru í 10. gr. a í jarðalögum áður en það er sent sveitarstjórn til umsagnar. Að lokum bendir sveitarstjórn á það frestur sé of stuttur til að gefa umsögn.

Gagnrýna harðlega að einn aðili geti safnað að sér ógrynni af landi
Stjórn Félags Sauðfjárbænda í Vestur-Húnavatnssýslu tekur undir bókun sveitarstjórnar Húnaþings vestra vegna sölu á jörðinni og hefur sent frá sér ályktun sem samþykkt var í gær. Stjórnin gagnrýnir harðlega að einn aðili geti safnað að sér slíku ógrynni af landi enda verði illa skilið hvað einn aðili hafi að gera með svona mikið land.

Í bókun stjórnarinnar segir:

Umræða um jarðasöfnun á fárra hendur á síðustu árum skilaði því loks að alþingi samþykkti síðastliðið sumar breytingu á jarðalögum en þá voru settar reglur um söfnun lands og skyldu eigenda til nýtingar og búsetu á jörðum. Enn fremur kemur fram í lögunum að lögbundin hámarkseign hvers aðila sé 1.500 hektarar lands og fari kaupin yfir þetta hámark verði að leita eftir umsögn sveitarfélagsins varðandi kaupin.

Samkvæmt upplýsingum frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu eiga Flaumur ehf. og tengdir aðilar 5.548 hektara lands fyrir þessi kaup. Stjórn Félags sauðfjárbænda í V-Hún gangrýnir það harðlega að einn aðili geti safnað að sér slíku ógrynni af landi enda verður illa skilið hvað einn aðili hefur að gera með svona mikið land.

Í tilfelli Núpsdalstungu er vitað um ungt fjölskyldufólk sem gerði tilraun í fullri alvöru til að kaupa jörðina með það í huga að setjast þar að og hefja þar búskap. Raunhæf tilboð, fjármögnuð að fullu, en voru nánast hundsuð af viðkomandi fasteignasala. Jarðasafnarar sem eiga jarðir hér um slóðir virðast ekki vera mikið fyrir að hafa ljós í glugga á býlum sínum né að þar séu börn að leik.

Ef þessi kaup vera að veruleika athugasemdalaust er til lítils að koma með mótbárur við næstu kaup jarðasafnara þar sem þá verður komið fordæmi. Í jarðalögum kemur fram að fari jarðakaup yfir þetta hámark þurfi að fylgja með rökstuðningur varðandi það hvernig eigi að nytja jörðina. Ekki verður þó séð að nein viðurlög séu við því ef kaupandi stendur ekki við nýtingarhugmyndir sínar og er þetta ákvæði því hálf litlaust.

Stjórn Félags sauðfjárbænda í V-Hún skorar hér með á ráðherra að hafna þessum kaupum.

Andri Teitsson er skráður stjórnarmaður Flaums ehf. og er lögheimili félagsins á Akureyri samkvæmt Fyrirtækjaskrá. 

 

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið