Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 12:58 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 12:58 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 12:58 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 12:58 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 12:58 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 12:58 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra velja árlega framúrskarandi verkefni á sviði menningarmála annars vegar og atvinnuþróunar og nýsköpunar hins vegar. Í ár hljóta verkefnin Hvammstangi International Puppetry festival og Sölubíll smáframleiðenda á Norðurlandi vestra viðurkenningarnar. Viðurkenningarnar voru afhentar fulltrúum þessara verkefna á dögunum.
Kallað var eftir tilnefningum til verkefnanna meðal íbúa í landshlutanum og bárust fjölmargar, að því er segir í tilkynningu frá SSNV.
Stjórn SSNV ákvað á fundi sínum 12. janúar síðastliðinn að veita eftirfarandi verkefnum viðurkenningar:
Á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar: Vörusmiðja Biopol fyrir Sölubíl smáframleiðenda á Norðurlandi vestra. Verkefnið er allt í senn, sameiningarafl fyrir smáframleiðendur, aukin þjónusta við viðskiptavini þeirra og nýstárleg og góð lausn á markaðssetningu og sölu afurða beint frá býli. Verkefnið styður við smáframleiðendur á því sviði þar sem þekkingu þeirra margra skortir og er í takt við markmið Sóknaráætlunar landshlutans um aukið virði afurða sem og sölu vara beint frá býli. Sölubíllinn hefur vakið jákvæða og verðskuldaða athygli á svæðinu sem er eitt mesta matvælahérað landsins og er mikilvægur þáttur í áframhaldandi atvinnuþróun og uppbyggingu þess.
Á sviði menningarmála: Handbendi brúðuleikhús fyrir brúðulistahátíðina Hvammstangi International Puppetry Festival. Frá stofnun hefur brúðuleikhúsið Handbendi vakið jákvæða athygli á landshlutanum fyrir metnaðarfull og vönduð menningarverkefni sem farið hafa víða, innanlands sem utan. Brúðulistahátíðin sem haldin var í fyrsta skipti í október 2020 var þar engin undantekning. Að halda alþjóðlega brúðulistahátíð á Norðurlandi vestra hefði alltaf verið ærið verkefni en að gera það á glæstan hátt í heimsfaraldri er listrænt og framkvæmdarlegt afrek. Verkefnið er listamönnum í landshlutanum hvatning til að láta ekkert stoppa sig í að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd og er brúðuleikhúsið Handbendi mikilvægur þáttur í menningarlífi landshlutans.
Viðurkenningarnar voru afhentar fulltrúum þessara verkefna á dögunum. Fyrir hönd brúðulistahátíðarinnar tók Greta Clough listrænn stjórnandi Handbendi brúðuleikhúss við viðurkenningunni en hún er stofnandi leikhússins sem staðsett er á Hvammstanga. Nánari upplýsingar hér: https://www.handbendi.com/ og um brúðulistahátíðina hér: https://www.thehipfest.com/index.html
Fyrir hönd Sölubíls smáframleiðenda tóku Þórhildur M. Jónsdóttir og Auðbjörg Ósk Guðjónsdóttir við viðurkenningunni. Þórhildur er verkefnisstjóri Vörusmiðju Biopol sem er vottað vinnslurými fyrir smáframleiðendur. Abba er starfsmaður Sölubílsins og hefur farið um Norðurland vestra og selt framleiðslu smáframleiðenda í honum. Nánari upplýsingar um Vörusmiðjuna og Sölubílinn er að finna hér: https://vorusmidja.is/
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |