Fréttir | 20. janúar 2021 - kl. 20:50
Áframhaldandi matvælaaðstoð KS

Kaupfélag Skagfirðinga ætlar að framlengja fram yfir páska matvælaaðstoð sína við þá sem eiga í erfiðleikum vegna atvinnumissis af völdum kórónuveirufaraldursins eða fjárhagsvanda af öðrum ástæðum. Matargjafir félagsins fyrir jólin, alls um 90 þúsund máltíðir sem dreift var með milligöngu hjálparstofnana, komu sér víða vel en vandinn er enn til staðar, segir í tilkynningu frá Kaupfélagi Skagfirðinga.

Kaupfélagið hefur þess vegna tekið ákvörðun í samstarfi við Fjölskylduhjálp Íslands, Hjálparstofnun kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og aðra staðbundna aðila.

Fyrirkomulag varðandi dreifingu matvælanna verður með sama hætti og fyrr. Framangreindar hjálparstofnanir annast úthlutun og hver máltíð verður sem fyrr samsett af íslenskum matvælum sem einkum eiga uppruna sinn í framleiðslu kaupfélagsins og dótturfélaga þess, segir í tilkynningu frá Kaupfélagi Skagfirðinga.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga