Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 09:07 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 09:07 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 09:07 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 09:07 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 09:07 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 09:07 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Höfðaskóli á Skagaströnd fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í Samrómi - lestrarkeppni grunnskóla, sem stóð yfir 18.-25. janúar síðastliðinn. Skólinn lenti í öðru sæti í sínum flokki og í þriðja sæti á landsvísu. Í heild voru lesnar 790 þúsund setningar í keppninni frá 6.172 manna fyrir 136 skóla. Veitt voru verðlaun til skólanna sem voru í fyrsta sæti í sínum flokki, auk þess að þeir skólar sem lásu mest þvert á flokka þar á eftir fengu viðkenningu fyrir frábæran árangur.
Skólarnir sem sigruðu sína flokka voru Setbergsskóli, Smáraskóli og Grenivíkurskóli. Skólarnir sem fengur viðkenningu fyrir framúrskarandi árangur voru Höfðaskóli, Gerðaskóli og Myllubakkaskóli. Þess má geta að Höfðaskóli var með 102.535 lesnar setningar í keppninni. Ylfa Fanndís Hrannarsdóttir, nemandi í 5. bekk Höfðaskóla las mest af öllum eða 12.254 setningar.
Verkefnið hefur staðið yfir frá því lok árs 2019 og fram að keppninni höfðu safnast um 320 þúsund setningum. Það gerir um 131 setningu á hvern þátttakanda en raunin var að tugir keppenda lásu þúsundir setninga.
Forsetahjónin afhentu viðurkenningar vegna þátttöku keppninni. Súsanna og Steinunn Kristín Valtýsdætur tóku við viðurkenningu fyrir hönd Höfðaskóla.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |