Auðunn Sigurðsson, formaður Hvatar og Valdimar O. Hermannsson, sveitarstjóri undirrita samning Hvatar og Blönduósbæjar. Mynd: blonduos.is
Auðunn Sigurðsson, formaður Hvatar og Valdimar O. Hermannsson, sveitarstjóri undirrita samning Hvatar og Blönduósbæjar. Mynd: blonduos.is
Fréttir | 03. febrúar 2021 - kl. 14:47
Samningar um öflugt íþrótta- og tómstundastarf í Blönduósbæ

Gerðir hafa verið nýir samningar við íþróttafélögin í Blönduósbæ. Samningarnir gilda fyrir árin 2021 og 2022, eða til tveggja ára. Formenn félaganna og sveitarstjóri hafa á undanförnum dögum verið að skrifa undir samningana en þeir eru við Ungmennafélagið Hvöt, Hestamannafélagið Neista, Júdófélagið Pardus, Skotfélagið Markviss og Golfklúbbinn Ós. Einnig voru gerðir nýir samningar við USAH, Björgunarfélagið Blöndu og Reiðhöllina Arnargerði.

„Með þessum samningum þessum er ætlað að efla samstarf Blönduósbæjar og félaganna til að tryggja öflugt íþrótta- og tómstundastarf í Blönduósbæ,“ segir á vef Blönduósbæjar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga