Grunnskóli Húnaþings vestra
Grunnskóli Húnaþings vestra
Fréttir | 04. febrúar 2021 - kl. 12:51
Vilja breyta nafni Grunnskóla Húnaþings vestra

Fræðsluráð Húnaþings vestra leggur til að nafni Grunnskóla Húnaþings vestra verði breytt og hefur lagt fram tillögur að fimm nýjum nöfnum sem nemendur og starfsfólk skólans fái að kjósa um. Í fundargerð fræðsluráðs kemur fram að ákvörðunin sé tekin í framhaldi af áskorun nemenda um nafnabreytingu á grunnskólanum.

Í fundargerðinni kemur einnig fram að nafnabreytingaferlið hafi farið af stað árið 2016 og vill fræðsluráðið að haldið verði áfram með það og að kosið verði um eftirfarandi nöfn:

Hvammaskóli
Húnaskóli
Hvammstangaskóli
Tangaskóli

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga