Tilkynningar | 05. febrúar 2021 - kl. 14:17
Prjónanámskeið á netinu
Frá Textílmiðstöð Ãslands

Við hitum upp fyrir Prjónagleðina 2021 með því að bjóða upp á spennandi prjónanámskeið með Deborah Gray á netinu. Langar þig að prófa eitthvað nýtt í prjóni, stíga aðeins útfyrir boxið og láta reyna á hugmyndaflugið?  Hvernig líst þér á að læra að hanna og prjóna þín eigin póstkort? 

Netnámskeið fimmtudagskvöldin; 18., 25. febrúar & 4. mars, kl: 19.30 – 21.30. 

Námskeiðið fer fram á ensku.

Námskeiðið skiptist í 3 hluta. Í fyrsta hlutanum er farið í gengum hönnunarferli póstkortsins og í öðrum hluta er farið í prjónatæknina sem þarf til. Í þriðja hluta námskeiðsins sýna þátttakendur og segja frá sínum póstkortum og geta leitað ráða ef á þarf að halda.

Deborah Gray er skosk textíllistakona sem kennt hefur pjón og ullarvinnslu í áratugi.  Hún hefur prjónast á við Sue vinkonu sína með þessum hætti í 2 ár, innblásin af #knittedcorrespondence á Instagram og KNITSONIK bókinni Stranded Colorwork Sourcebook eftir Felicity Ford.  Þær stöllur prjónast á um hversdagslega hluti, atburði og upplifanir.

Nánari upplýsingar og skráning á https://www.textilmidstod.is/.../work.../knitted-postcards-1

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga