Tjaldsvæðið Höfðahólum. Mynd: skagastrond.is
Tjaldsvæðið Höfðahólum. Mynd: skagastrond.is
Fréttir | 09. febrúar 2021 - kl. 15:38
Tjaldsvæðið Höfðahólum til leigu

Tjaldsvæðið Höfðahólum á Skagaströnd er laust til leigu. Á vef Skagastrandar óskar sveitarfélagið eftir því að gera samning um umsjón og rekstur tjaldsvæðis til að minnsta kosti eins árs. Tjaldsvæðið í Höfðahólum er á skjólsælum og rólegum stað efst í byggðinni og horfir á móti sólu. Í miðju svæðisins er gamall bæjarhóll þar sem bærinn Höfðahólar stóðu. Svæðið er í fallegu umhverfi og nýtur skjóls til norðurs og austurs af lágum klettahólum sem kallaðir eru Hólaberg.

Runnar skipta svæðinu upp í nokkra reiti sem skapa þægileg umhverfi fyrir tjöld, húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagna. Rafmagnstenglar eru á nokkrum stöðum. Á svæðinu er góð aðstaða fyrir börn í spennandi náttúrlegu umhverfi. Í þjónustuhúsinu eru sturta, vatnssalerni, þvottavél og aðstaða til uppþvotta.

Umsóknum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar eða á netfangið sveitarstjori@skagastrond.is og er umsóknarfrestur til og með 1. mars. 2021. Frekari upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma 455-2700 eða sveitarstjori@skagastrond.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga