Tilkynningar | 11. febrúar 2021 - kl. 09:11
Héraðsmót USAH 2021
Frá mótanefnd

Héraðsmót USAH innanhús í frjálsum íþróttum verður haldið laugardaginn 20. febrúar nk. í íþróttamiðstöðinni á Blönduósi. Skráning byrjar kl. 12:00 og hefst keppni stundvíslega kl. 12:10. Mótið er fyrir krakka fædd 2011 - 2004. Keppt verður í langstökki án atrennu, kúluvarpi, hástökki, 30m spretthlaupi og boðhlaupi. Skráning er á staðnum.

Vegna sóttvarnalaga þá er foreldrum og fylgdarmönnum ekki heimilt að horfa/fylgja börnum sínum á mótinu, við reynum að bæta úr því með að vera dugleg að taka myndir.

Hlökkum til - mótanefnd USAH

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga