Veglegar gjafir. Mynd: hunathing.is
Veglegar gjafir. Mynd: hunathing.is
Fréttir | 12. febrúar 2021 - kl. 10:04
Órion fékk veglegar gjafir frá Gærunum

Í síðasta mánuði komu Gærurnar, sem halda úti nytjamarkaðinum á Hvammstanga, færandi hendi með tvær gjafir handa félagsmiðstöðinni Órion. Þær gáfu annars vegar uppþvottavél, sem margir unglingar hafa beði lengi eftir, og hins vegar flott fótboltaspil. Þetta eru veglegar gjafir sem unglingarnir í félagsmiðstöðinni og aðrir njóta vonandi góðs af, segir í frétt á vef Húnaþings vestra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga