Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Mynd: stjornarradid.is
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Mynd: stjornarradid.is
Fréttir | 12. febrúar 2021 - kl. 10:32
Nýir nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra auglýsir eftir umsóknum um Lóu - nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina. Tilgangur styrkjanna, sem nú verða veittir í fyrsta sinn, er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra.

Lóa styður við nýsköpunarstefnu og er liður í breytingum á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar vegna fyrirhugaðar niðurlagningar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, að því er segir á vef Stjórnarráðsins.

Heildarfjárhæð styrkja árið á þessu ári er 100 milljónir króna, en hámarksstyrkur til hvers verkefnis er 20 milljónir króna og er úthlutað til árs í senn. Ráðherra mun skipa matshóp sem fer yfir styrkhæfi umsókna í samræmi við nýsköpunarstefnu og áherslur stjórnvalda. Hópurinn gerir tillögur til ráðherra um veitingu styrkja. 

Umsóknarfrestur er til 9. mars 2021.

Umsóknum er skilað rafrænt. Opnað var fyrir umsóknir 11. febrúar á eyðublaðavef stjórnarráðsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga