Fréttir | 16. febrúar 2021 - kl. 09:24
Húnaþing vestra auglýsir á vef sínum starf skipulags- og byggingarfulltrúa laust til umsóknar. Um er að ræða 100% starf með starfsstöð á Hvammstanga. Hlutverk byggingarfulltrúa er að veita embættinu faglega forystu og móta framtíðarstefnu innan ramma laga og reglugerða. Jafnframt að hafa eftirlit og eftirfylgni með að lögum og reglugerðum sé framfylgt.
Starfssvið:
- Framkvæmd skipulags- og byggingarmála.
- Áætlanagerð og eftirfylgni, mælingar og úttektir.
- Undirbúningur og eftirfylgni funda skipulags- og umhverfisráðs.
- Byggingarfulltrúi ber m.a. ábyrgð á skráningu mannvirkja, úttektum, staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga, gjaldtöku, skráningu, varðveislu og miðlun upplýsinga um mannvirki til íbúa.
- Samstarf við aðila utan og innan stjórnsýslunnar sem sinna verkefnum á sviði byggingarmála.
- Önnur verkefni sem viðkomandi er falið hverju sinni og undir embættið heyra.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á sviði byggingarmála skv. 8. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010.
- Þekking og reynsla á sviði byggingarmála
- Þekking og reynsla á sviði skipulagsmála
- Þekking og reynsla af úttektum og mælingum.
- Þekking á lögum um mannvirki, skipulagslögum og byggingarreglugerð.
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
- Góð íslenskukunnátta og hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti.
- Góð almenn tölvukunnátta.
Með umsókn skal fylgja greinargóð starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir sveitarstjóri í síma 455 2400 eða á netfanginu rjona@hunathing.is.
Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar.
Umsóknir skulu berast á netfangið rjona@hunathing.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.