Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 00:58 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 00:58 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 00:58 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 00:58 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 00:58 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 00:58 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í gær komu 1.000 skammtar af Pfizer bóluefninu og tæplega 80 skammtar af Moderna bóluefninu til Norðurlands. Pfizer bóluefnið er ætlað fyrir seinni bólusetningu hjá þeim sem voru bólusettir 19.-25. janúar. Moderna bóluefnið verður meðal annars nýtt til að bólusetja starfsfólk heimahjúkrunar og starfsfólk í dagdvölum á Akureyri og í nærliggjandi byggðum, að því er segir í frétt á vef Heilbrigðisstofnun Norðurlands.
Þessir skammtar verða nýttir fyrir vikulok og hafa þá um 1520 manns verið bólusettir að fullu og 280 til viðbótar fengið fyrri skammt.
Í næstu viku koma um 200 skammtar af Pfizer bóluefni sem er ætlað fyrir seinni bólusetningu þeirra sem voru bólusettir 2.-5. febrúar. Auk þess er áætlað að 800 skammtar af AstraZeneca bóluefninu berist sem nýttir verða til að byrja á að bólusetja starfsmenn hjúkrunar- og dvalarheimila, sambýla og búsetukjarna og því haldið áfram viku síðar þegar um 500 skammtar til viðbótar berast. AstraZeneca bóluefnið er ætlað þeim sem eru á aldrinum 18 til 65 ára.
Í fyrstu viku mars munu berast 720 skammtar af Pfeizer bóluefninu sem verður nýtt til að halda áfram að bólusetja íbúa 80 ára og eldri og mun HSN komast langt með að bólusetja þann hóp í þessari sendingu.
HSN bendir á að þetta er áætlun og er því fyrirvari um breytingar. Haft verður samband við íbúa og þeir boðaðir í bólusetningu þegar kemur að þeim. HSN biður fólk um að sýna þolinmæði, það mun koma að öllum og enginn verður skilinn útundan.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |