Tilkynningar | 17. febrúar 2021 - kl. 22:01
Aðalfundur kirkjugarðs Blönduóss
Frá stjórn

Aðalfundur kirkjugarðs Blönduóss, verður haldinn í Samstöðusalnum að Þverbraut 1, Blönduósi miðvikudaginn 24. febrúar 2021 klukkan 18:00. Hvetjum sóknarbörn Blönduósskirkju til að mæta á fundinn og taka þátt í að móta framtíðarsýn fyrir kirkjugarðinn á Blönduósi. 

Dagskrá :

  1. Fundur settur.
  2. Starfsmenn fundarins, a) fundarstjóri b) fundaritari.
  3. Fundargerð síðasta aðalfundar og afgreiðsla.
  4. Skýrsla formanns.
  5. Reikningar ársins 2020. Ingunn María Björnsdóttir.
  6. Umræður um skýrslu og reikninga.
  7. Afgreiðsla reikninga.
  8. Framkvæmdaáætlun til næstu 3ja ára.
  9. Kosningar a) 3 aðalmenn í stjórn til eins árs og 2 til vara, 2 skoðunarmenn og 1 til vara .
  10. Önnur mál.
  11. Fundarslit.

Hvetjum sóknarbörn Blönduósskirkju til að mæta á fundinn og taka þátt í að móta framtíðarsýn fyrir kirkjugarðinn á Blönduósi. 

 Stjórnin.    

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga