Tilkynningar | 25. febrúar 2021 - kl. 13:46
Skagaströnd auglýsir eftir atorkumiklum starfsmanni á höfn og í áhaldahús sveitarfélagsins. Skagaströnd er fallegt sjávarþorp á norðurlandi vestra. Íbúar í sveitarfélaginu Skagaströnd eru um 480 og starfsmenn þess um 48 talsins. Í boði er 80 - 100% starf starfsmanns sem sinnir daglegum verkefnum á Skagastrandarhöfn og í áhaldahúsi sveitarfélagsins.
Á höfninni sinnir starfsmaðurinn leiðsögn og þjónustu, gerð reikninga og innheimtu, vigtun, öryggiseftirliti, viðhaldi o.fl. Í áhaldahúsi er helstu verkefni ýmis viðhaldsvinna, mokstur, umhirða bæjarlands, umsjón vinnuskóla og önnur tilfallandi vinna.
Hæfniskröfur
- Réttindi sem löggiltur vigtarmaður eða vera tilbúinn til að sækja námskeið til öflunar slíkra réttinda og standast próf
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Vinnuvélapróf kostur
- Góð tölvukunnátta
- Skipulögð vinnubrögð
- Sjálfstæði og frumkvæðni
- Lipurð í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund
- Umsækjandi þarf að vera 20 ára eða eldri og með hreint sakarvottorð
- Íslenskunnátta er skilyrði
Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 9. mars og æskilegt að starfsmaður geti hafið störf í maí n.k.
Umsókn, ferilskrá og kynningabréfi, skal skila á netfangið sveitarstjori@skagastrond.is.
Frekari upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma 455 2700.