Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 11:52 0 0°C
Laxárdalsh. 11:52 0 0°C
Vatnsskarð 11:52 0 0°C
Þverárfjall 11:52 0 0°C
Kjalarnes 11:52 0 0°C
Hafnarfjall 11:52 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Fréttir | 04. mars 2021 - kl. 12:19
SSNV hlýtur styrk til að meta eiginleika og nýtingu glatvarma í gagnaverinu á Blönduósi

Verkefnasjóður umhverfis- og auðlindaráðuneytis hefur veitt Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra styrk að fjárhæð 6 milljónir króna til verkefnisins Nýting glatvarma í hringrásarhagkerfinu.

Verkefnið felst í að safna og greina gögn sem nauðsynleg eru til að meta eiginleika glatvarmans sem myndast í gagnaveri Etix Everywhere Borealis á Blönduósi með það að augnamiði að nýta varmann í hringrásarhagkerfinu sem aflvaka fyrir staðbundna matvælavinnslu. Um nokkurt skeið hefur verið vinna í gangi hjá SSNV í að við að finna og greina tækifæri á nýtingu glatvarma á Norðurlandi vestra og umrætt verkefni eitt af þeim.

Um er að ræða 18 mánaða verkefni þar sem markmiðið er að leggja grunn að þróun á tækni til að nýta glatvarma frá gagnaveri til ylræktunar á matvælum og draga þannig úr neysludrifnu kolefnisspori Norðurlands vestra með því að minnka þörfina á innflutningi matvæla og auka fæðuöryggi svæðisins. Verkefnisstjóri verður Hólmfríður Sveinsdóttir frá Merg ráðgjöf ehf. en hún hefur gríðarlega mikla reynslu innan nýsköpunar- og sprotafyrirtækja.

„Þetta er mikil viðurkenning fyrir okkur sem hafa komið að verkefninu og verður skemmtilegt að takast á við. Það eru margir að vinna að þessu verkefni þó svo að SSNV hafi verið í forgrunni í þessari umsókn. Þetta er í raun fyrsta skrefið í mjög stóru verkefni þar sem við erum m.a. að vinna með Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Blönduósbæ, Matís, Merg ráðgjöf, Etix Everywhere Borealis og RISE í Svíþjóð.“ segir Magnús Jónsson, verkefnastjóri fjárfestinga hjá SSNV í tilkynningu á vef samtakann.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið