Gærur og nemendur í huggulegri setustofunni. Mynd af FB.
Gærur og nemendur í huggulegri setustofunni. Mynd af FB.
Fréttir | 09. mars 2021 - kl. 09:07
Setustofa dreifnáms FNV á Hvammstanga gerð huggulegri

Í byrjun árs keypti Húnaþing vestra nýja sófa í setustofu nemenda í dreifnámi Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra á Hvammstanga. Nemendur höfðu áhuga á að gera setustofuna aðeins huggulegri og brugðu á það ráð að senda styrkbeiðni til Gæranna, sem er hópur kvenna sem heldur úti nytjamarkaði á Hvammstanga og lætur góð málefni í heimabyggð njóta ágóðans.

Þær brugðust skjótt við og innan viku vorum voru mottur, gluggatjöld, tvö borð, púði og mynd komin í setustofuna, sem er nú orðin afar hlýleg.

Þess má geta að stór hluti af gömlu húsgögnunum komu frá nytjamarkaðnum á sínum tíma og hafa því þjónað tilgangi sínum mjög vel.  

Sagt er frá þessu á facebooksíðu dreifnámsins á Hvammstanga.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga