Ragnar, Jóhannes og Ari. Ljósm. Aðsend.
Ragnar, Jóhannes og Ari. Ljósm. Aðsend.
Lyklar afhentir. Ragnar og Jóhannes. Ljósm: Aðsend.
Lyklar afhentir. Ragnar og Jóhannes. Ljósm: Aðsend.
Fréttir | 09. mars 2021 - kl. 10:02
Verkís opnar skrifstofu á Blönduósi

Ámundakinn og verkfræðistofan Verkís undirrituðu nýverið leigusamning um skrifstofuhúsnæðis að Húnabraut 13 á Blönduósi. Verkís hefur nú opnað þar skrifstofu og er stefnt að því að hún verði opin einu sinni í viku að jafnaði og jafnvel oftar er þörf þykir. Starfsmaður Verkís á Sauðárkróki, Magnús Ingvarsson, mun sinna skrifstofunni til að byrja með en ætlunin er að ráða starfsmann sem hefur aðsetur á Blönduósi og að skrifstofan verði því opin alla daga vikunnar.

Þessir starfsmenn eru síðan studdir öflugum starfsmönnum Verkís annars staðar á landinu sem gerir þeim þannig kleift að veita þjónustu á breiðum grunni í fjölbreyttum verkefnum, bæði stórum sem smáum. Verkís hefur horft sérstaklega til þess að efla þjónustu sína á Norðurlandi vestra á undanförnum misserum og er opnun skrifstofu á Blönduósi liður í þeirri viðleitni.

Ámundakinn er bakhjarl atvinnulífs á svæðinu og umsvif félagsins treysta stoðir annarra fyrirtækja á svæðinu. Það er fyrirtækjum mikilvægt að til staðar sé fjölbreytt húsnæði sem hentar mismunandi starfsemi þannig að atvinnustarfsemi af ýmsum toga eigi auðvelt með að koma sér fyrir.

Í tilkynningu segir að það sé sérstaklega ánægjulegt að þessi leigusamningur sé í höfn milli Verkís og Ámundakinnar og að starfsemi sé hafin í rýminu sem um ræðir. "Það er von beggja aðila að þetta sé upphafið að farsælu samstarfi þeirra sem geti orðið til þess að styrkja stoðir atvinnulífs á svæðinu enn frekar."

Á meðfylgjandi mynd eru f.v. Ragnar Bjarnason, útibússtjóri Verkís á Norðurlandi, Jóhannes Torfason, framkvæmdastjóri Ámundakinnar, og Ari Guðmundsson, sviðsstjóri starfsstöðvasviðs Verkís.

Fréttin hefur verið uppfærð.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga