Fallegt kvöld í Fagrahvammi 2019.
Fallegt kvöld í Fagrahvammi 2019.
Fréttir | 10. mars 2021 - kl. 16:13
Auglýst eftir aðilum í fjáröflun

Menningar-, íþrótta-, og tómstundafulltrúi Blönduósbæjar auglýsir á vef sveitarfélagsins eftir félagasamtökum eða einstaklingum sem hafa áhuga á að vera með fjáröflun í formi sölu á viðburðum hjá Blönduósbæ í sumar. Viðburðir eins og 17. júní og Húnavaka eru nefndir en bæjarhátíðin verður haldin 15.-18. júlí.  

Á vef Blönduósbæjar segir:

„Hér á árum áður hafa ýmis félagasamtök tekið að sér að sjá um hátíðir eða verið með fjáröflun í formi sölu á varningi, kaffisölu, sjoppu o.fl. Nú leita ég til þeirra sem eru í forsvari hjá þeim fjölmörgu félagasamtökum í sveitarfélaginu eða einstaklinga í fjáröflun til þess að koma með hugmyndir af sölu eða taka að sér eftirfarandi:

  • Kaffisölu/matsölu á 17. júní.
  • Sölu á varningi (blöðrum, fánum, nammi o.fl.) á 17. júní.
  • Andlitsmálningu á 17. júní og á Húnavöku.
  • Sjoppu/kaffisölu/matsölu á Húnavöku.
  • Sala á ýmsum varningi á Húnavöku.

Fyrir rétta aðila/félög, félagasamtök, skólahópa, íþróttafélög og hin ýmsu félög eða hópa  þá eru þetta fjáraflanir sem geta skilað inn góðum tekjum.

Þeir sem hafa áhuga eða eru með hugmyndir og fyrirspurnir geta haft samband við Kristínu Ingibjörgu menningar-, íþrótta-, og tómstundafulltrúa í síma 455-4700 eða senda tölvupóst á netfangið kristin@blonduos.is fyrir  1. maí næstkomandi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga