Mynd: ssnv.is
Mynd: ssnv.is
Fréttir | 10. mars 2021 - kl. 16:26
Nafn vantar á skrifstofusetur á Hvammstanga

Bráðlega opnar skrifstofusetur á Hvammstanga í húsnæði Landsbankans á Höfðabraut 6. Þar verður boðið upp á skrifstofuaðstöðu fyrir þá sem vinna störf án staðsetningar og aðra þá sem þurfa á vinnuaðstöðu að halda. Skrifstofur Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra munu flytjast í húsnæðið. Á vef samtakanna er auglýst eftir nafni á húsnæðis sem er lýsandi fyrir starfsemina, „og ekki er verra að það tengist með einhverjum hætti héraðinu.“

Skrifstofusetrið er áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands vestra sem unnið er með stuðningi frá Landsbankanum en afgreiðsla bankans verður áfram rekin með óbreyttu sniði í húsnæðinu, að því er segir á vef SSNV. Þar kemur einnig fram að verið sé að gera smávægilegar breytingar á rýminu áður en hægt er að opna aðstöðuna en að hún verði öll eins og best verði á kosið, rúmgóð og björt.

Þeir sem erum með hugmyndir að nafni geta sent þær á netfangið ssnv@ssnv.is í síðasta lagi 15. mars næstkomandi. Sá sem sendir inn vinningstillöguna fær gjafabréf upp á þriggja rétta máltíð fyrir tvo á Sjávarborg (ef fleiri en einn senda inn sömu tillögu verður dregið um vinningshafann). Starfsmenn SSNV munu leggja mat á innsendar hugmyndir og leggja tillögu að nafni á skrifstofusetrið fyrir stjórn samtakanna.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga