Fréttir | 15. mars 2021 - kl. 09:34
Skráning í Ullarþon fram úr björtustu vonum

Textílmiðstöð Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands halda Ullarþon daganna 25. - 29. mars næstkomandi. Verkefnið er styrkt af Framleiðnisjóði Landbúnaðarins. Skráning hefur farið fram úr björtustu vonum og enn er hægt að skrá sig, að því er segir í tilkynningu.

Ullarþon er nýsköpunarkeppni haldin á netinu til að ýta undir nýsköpun og vöruþróun, auka verðmæti ullarinnar og þá sérstaklega verðminnstu ullarflokkanna. Ull er ekki bara band. Eiginleikar ullarinnar eru margþættir. Hægt er að skapað meiri verðmæti úr ullinni

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

1. Þróun á vinnslu textíls úr óunninni ull
2. Blöndun annarra hráefna við ull
3. Ný afurð
4. Stafrænar lausnir og rekjanleiki.

Allir áhugasamir eru hvattir til að taka þátt! Skráning hófst 1. mars. Hægt er að taka þátt hvort heldur sem einstaklingur eða í teymi. Lokaskil á hugmyndum er 29. mars, í formi myndbands. Úrslit verða kynnt á Hönnunarmars 2021. Heildarverðmæti vinninga eru um 1.600.000 kr.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á Facebookar síðu “Ullarþon” eða á heimasíðu Textílmiðstöðvarinnar; www.textilmidstod.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga