Frá Hvammstanga. Ljósm: hunathing.is
Frá Hvammstanga. Ljósm: hunathing.is
Fréttir | 15. mars 2021 - kl. 13:35
Stefnt að uppbyggingu leiguíbúða á Hvammstanga

Leigufélagið Bríet stefnir á uppbyggingu á hagkvæmum leiguíbúðum á Hvammstanga. Á vef Húnaþings vestra auglýsir leigufélagið og sveitarfélagið eftir byggingaraðilum til að taka þátt í uppbyggingu íbúðanna. Byggingaraðili skal vera aðalverktaki og annast framkvæmd verkefnis í samráði við sveitarfélagið og leigufélagið. Við val á byggingaraðilum til samstarfs verður tekið tillit til reynslu aðila ásamt hagkvæmni og gæðum lausna.

Gögn fyrir samstarfsaðila er hægt að nálgast með að senda tölvupóst á soffia@briet.is og skal gögnum skilað fyrir föstudaginn 9. apríl 2021.

Nánari upplýsingar veita Soffía Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Bríetar (soffia@briet.is) og Elmar Erlendsson byggingafræðingur hjá HMS (elmar.erlendsson@hms.is).

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga