Fréttir | 18. mars 2021 - kl. 10:26
Guðjón S. Brjánsson hættir á þingi

Guðjón S. Brjánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi, ætlar ekki að gefa kost á sér í flokksvali Samfylkingarinnar í kjördæminu sem fram fer síðar í þessum mánuði. Í tilkynningu segir hann að stjórnmál hafi átt hug hans einustu ár eða frá því hann settist á þing árið 2016. Hann hafi stefnt á að bjóða sig fram aftur en síðar fundið að hugur fylgdi ekki hjarta.

„Mig langar að eyða meiri tíma með minni fjölskyldu og fylgjast með barnabörnunum dafna og þroskast sem ég hef ekki haft nægilegan tíma til að gera. Ég er þakklátur fyrir þann heiður að hafa fengið að sitja á Alþingi fyrir hönd jafnaðarmanna og að hafa barist fyrir hagsmunum landsmanna allra á þingi. Ég þakka öllum mínum kjósendum í Norðvesturkjördæmi og samstarfsfélögum fyrir stuðninginn á liðnum árum,“ segir Guðjón í tilkynningunni.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga