Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Fréttir | 19. mars 2021 - kl. 12:22
Húnaþing vestra fær styrk vegna ljósleiðarastofnstrengja

Húnaþing vestra fær 33,5 milljónir króna í styrk frá Fjarskiptasjóði, sem hefur nú lokið yfirferð á styrkumsóknum í B-hluta Ísland ljóstengt 2021 og vegna ljósleiðarastofnstrengja. Þrettán sveitarfélögum stóð til boða samtals 180 milljónir króna. Tilboð fjarskiptasjóðs náði til allra styrkhæfra staða sem sótt var um í þessari lokaúthlutun verkefnisins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga