Fréttir | Tilkynningar | 24. mars 2021 - kl. 09:36
Nýsköpunarmiðstöð Íslands & Textílmiðstöð Íslands, stuðla að nýsköpun úr ullinni
Tilkynning

Textílmiðstöð Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands halda Ullarþon daganna 25.-29. mars næstkomandi. Verkefnið er styrkt af Framleiðnisjóði Landbúnaðarins. Nú hafa hátt í 100 teymi skráð sig til leiks í Ullarþonið sem hefst  fimmtudaginn, 25. mars. Það verður frábært að sjá hvað kemur í lokaskilum inn á mánudaginn 29. mars.

Ullarþon er nýsköpunarkeppni haldin á netinu til að ýta undir nýsköpun og vöruþróun, auka verðmæti ullarinnar og þá sérstaklega verðminnstu ullarflokkanna. Keppt verður í eftirfarandi flokkum; 1. Þróun á vinnslu textíls úr óunninni ull, 2. Blöndun annarra hráefna við ull, 3. Ný afurð 4. Stafrænar lausnir og rekjanleiki.

Hvetjum alla áhugasama til að taka þátt!  Hægt er að taka þátt hvort heldur sem einstaklingur eða í teymi, eða mynda teymi á Facebookar síðu Ullarþonsins. Þátttakendur hafa aðgang að breiðum hóp leiðbeinenda á meðan Ullarþoninu stendur.

Lokaskil á hugmyndum er þann 29. mars. Dómnefnd mun þá meta hugmyndir og tilkynna um miðjan apríl hver mun vera í topp 5 í hverjum flokki.

Úrslit verða kynnt á Hönnunarmars 2021. Heildarverðmæti vinninga eru um 1.600.000 kr.

Beinar útsendingar verða frá viðburðinum verða:

Fimmtudagur 25. mars kl 16:00  Setning Ullarþons

Laugardagur 27.mars kl. 13:00   Útsending - lokaskráning

Sunnudagur 27.mars kl. 10:00   Markaðssetning á samfélagsmiðlum fyrir þátttakendur erindi. Zoom linkur hér. Meeting ID: 830 0155 7356

Mánudagur 29.mars kl. 13:00 Útsending - Lokaskil

Kæru þátttakendur, leiðbeinendur, dómarar og hagaðilar, góða skemmtun og megi nýsköpunin blómstra!

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á Facebookar síðu Ullarþon eða á heimasíðu Textílmiðstöðvarinnar; www.textilmidstod.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga